Veðurstofan spáir 10-19 stiga hita í dag. Hlýjast verður norðaustanlands. Næstu daga verður hlýjast á Austurlandi en Norðausturland mun aftur hafa vinninginn á föstudag.
Veðurspá dagsins í dag:
Hæg suðlæg eða breytileg átt, rigning með köflum eða skúrir í flestum landshlutum. Hiti víða 10 til 19 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-10. Skýjað með köflum og skúrir í flestum landshlutum. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast austanlands.
Á föstudag:
Suðlæg eða breytileg átt og rigning, en þurrt norðaustantil. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast norðaustantil.
Á laugardag og sunnudag:
Breytileg átt, skýjað með köflum og smáskúrir. Hiti 10 til 17 stig.