„Við krefjumst frjálsrar Palestínu“

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, hélt ræðu á Útifundi á Ingólfstorgi …
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, hélt ræðu á Útifundi á Ingólfstorgi í dag. mbl.is/Árni Sæberg

„Við krefjumst alþjóðlegrar verndar fyrir Palestínumenn. Við krefjumst þess að herkvíin um Gaza verði rofin. Við krefjumst frjálsrar Palestínu.“ Svona lauk ræðu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra á útifundi á Ingólfstorgi í dag undir fyrirsögninni: „Stöðvið blóðbaðið tafarlaust.“

Dagur fór yfir ástandið sem ríkir nú á Gaza og benti á að Sameinuðu þjóðirnar teldu mikinn meirihluta þeirra sem látið hafa lífið á Gaza óbreytta borgara. „Sameinuðu þjóðirnar ráku áður grunnskóla í miðborg Gaza. Þar fengu palestínskir strákar og stelpur menntun sína. Skólinn var griðastaður þegar ófriðurinn hófst, fyrir flóttamenn sem höfðu misst heimili sín. Í fyrradag rigndi yfir hann sprengjum - og aftur í gær. Þar er enginn lengur,“ sagði Dagur og bætti við að einnig hefði verið ráðist á þrjú sjúkrahús í borginni. 

„Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin gaf út í gær að ekki færri en átján sjúkrastofnanir hefðu verið eyðilagðar frá upphafi átakanna.“

Vitnaði í bréf norska læknisins

Einnig vitnaði Dagur í orð norska læknisins Mads Gilberts, sem starfað hefur á Al-Shifa-sjúkrahúsinu í átökunum. Bréf sem Gilbert skrifaði hefur farið eins og eldur í sinu um netheima. Í bréfinu lýsir hann ástandinu sem ríkir á svæðinu. 

„Lýsingar hans á aðstæðunum og þrautseigju samstarfsfólksins eru ótrúlegar og átakanlegar. Þegar vararafstöðvar hökta á skurðstofum spítalans lýsir Mads því að samstarfsfólk hans taki upp símana til að lýsa sár og sjúklinga sem eru í miðjum bráðaaðgerðum,“ sagði Dagur. 

Fyrsta krafan að blóðbaðinu linni

„Árásir á almenna borgara eru illvirki. Það er eðlilegt að krefjast þess að þeir sem bera ábyrgð á illvirkjum verði sóttir til saka. Og það á að vera okkar krafa. Við eigum ekki að þurfa að bíða eftir dómi sögunnar. Það þarf óháða alþjóðlega rannsókn á hugsanlegum stríðsglæpum á Gaza. Núna. Og það á að vera okkar krafa.
En fyrsta krafan er sú að blóðbaðinu linni. Ísraelsher leggi niður vopn. Hamas leggi niður vopn.

Við fordæmum þá atburði sem nú eiga sér stað, við fordæmum þau illvirki sem nú eiga sér stað, við hvetjum íslensk stjórnvöld til að beita öllum tiltækum ráðum til að endi verði bundinn á blóðbaðið tafarlaust og að umsátrinu um Gaza verði aflétt.“

Fjölmenni var útifundinum.
Fjölmenni var útifundinum. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert