Líkamsárás í Ingólfsstræti í nótt

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Júlíus

Lögreglunni barst tilkynning um átök og líkamsárás í Ingólfsstræti í miðbænum á þriðja tímanum í nótt. Dyraverðir höfðu gengið á milli í slagsmálunum þegar lögreglan kom á vettvang. Frekari upplýsingar um málið liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Þá voru alls fjórir ökumenn teknir úr umferð í höfuðborginni í nótt fyrir að aka undir áhrifum vímuefna. Lögreglan stöðvaði einn sem hafði ekið undir áhrifum áfengis á Suðurlandsbraut og þá voru þrír ökumenn teknir úr umferð fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna, einn á Kringlumýrarbraut, annar á Grundarstíg og hinn á Bústaðavegi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert