Ein líkamsárás fyrir austan

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Ein líkamsárás varð á tjaldsvæðinu á Borgarfirði eystra seint í nótt að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum. Hátíðin Bræðslan hefur staðið yfir á staðnum nú um helgina. 

Að sögn lögreglu hefur árásin ekki verið kærð til lögreglu enn sem komið er. 

Töluverður erill var hjá lögreglunni á Húsavík vegna Mærudaga, en ekkert alvarlegt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert