Loftbelgur sveif yfir Mývatnssveit

Loftbelgurinn sveif yfir Mývatnssveit í dag.
Loftbelgurinn sveif yfir Mývatnssveit í dag. mbl.is/Birkir Fanndal

Loftbelgur sveif yfir Mývatnssveit síðdegis í dag. Það var bæði logn og sól þegar belgurinn sveif yfir, rólega frá austri til vesturs, en hann var merktur Inserto. Öðru hvoru hvæsti hann og spúði eldi upp í gímaldið, en annars fór hann hljóðlega yfir sveitina.

Mývetningar hafa eflaust rekið upp stór augu enda er þetta ekki algeng sjón.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert