Gisti ekki í Landmannalaugum

Mikill fjöldi ferðamanna heimsækir Landmannalaugar árlega.
Mikill fjöldi ferðamanna heimsækir Landmannalaugar árlega. mbl.is/Brynjar Gauti

Sveitarfélagið Rangárþing ytra undirbýr nýtt skipulag í Landmannalaugum sem felur í sér að gisting á svæðinu verði aflögð.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Kristinn Guðnason, fulltrúi sveitarfélagsins í dómnefnd um skipulag svæðisins, svæðið ekki þola að svo margir gisti þar.

„Stefna okkar er að uppbygging á gistingu fari fram í jaðri byggðar, ekki í óbyggðunum sjálfum. Með því getur almenningur upplifað Landmannalaugar eins og þær voru áður en fjöldi gesta í gistingu margfaldaðist. Landmannalaugar bera ekki öll þessa tjöld,“ segir Kristinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert