Fundu 400 kannabisplöntur í sumarbústöðum

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Júlíus

Tíu löreglumenn frá Borgarnesi, Akranesi og Selfossi gerðu húsleit í tveimur sumarbústöðum síðastliðinn föstudag. Annar bústaðurinn á Hvítársíðu en hinn í Grímsnesi.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu, að tveir karlmenn, sem eru feðgar, hafi verið handteknir í bústaðnum í Grímsnesi og þeir fluttir til yfirheyrslu í lögreglustöðinni á Selfossi.

Þá segir, að við húsleit í Grímsnesinu hafi um 400 kannabisplöntur fundist í góðum blóma og um 90 plöntur í bústaðnum í Hvítársíðu. Auk þess hafi á báðum stöðum verið nýlegir lampar og annar búnaður sem til þurfti við ræktunina.

Lagt var hald á búnað og plöntur sem sendar voru til Tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til rannsóknar á styrkleika plantnanna.

„Mjög fagmannlega var staðið að ræktuninni og sýnilega miklu kostað til. Faðirinn viðurkenndi við yfirheyrslu að hafa staðið einn og óstuddur að ræktuninni og tilgangurinn verið að hafa hag af. Málið telst upplýst og verður að lokinn efnarannsókn sent ákæruvaldi til frekari meðferðar,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert