Gisti í fangaklefa þar sem öll hótel voru fullbókuð

Lögreglustöðin við Hverfisgötu.
Lögreglustöðin við Hverfisgötu. mbl.is/Eggert

Ferðalangur kom á lögreglustöðina á Hverfisgötu í morgun og bað um að fá að gista í fangaklefa. Lögreglan segir að ferðalangurinn, sem búi fyrir vestan, hafi verið nýkominn úr ferðalagi erlendis en lenti í þeirri ógæfu að fá ekki gistingu á höfuðborgarsvæðinu.

Öll hótel sem hann fór á voru fullbókuð svo úr varð að lögregla skaut yfir hann húsaskjóli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert