Verð á skólabókum lækkar víðast hvar á milli ára

Verð á skólabókum hefur í meirihluta tilvika lækkað milli ára við samanburð á verðkönnun sem var gerð í fyrra. Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnum á nýjum skólabókum í sex bókabúðum á höfuðborgarsvæðinu á þriðjudag. Samanburðurinn á milli ára náði til rúmlega tuttugu titla.

ASÍ segir á heimasíðu sinni, að verslunin IÐNÚ hafi lækkað verð á næstum öllum þeim bókatitlum sem til voru í báðum mælingum. Í verslunum A4 og Griffils hefur verð oftar lækkað en hækkað. Hjá Bóksölu Stúdenta og Forlaginu Fiskislóð hefur verð í um helmingi tilvika staðið í stað á milli ára. Eymundson er eini bóksali landsins sem hefur oftar hækkað verð á skólabókum en lækkað.

Þær verðbreytingar sem hér eru birtar miða við breytingar á verði verslana milli verðkannana verðlagseftirlits ASÍ þann 20.8.2013 og 19.8.2014. Rétt er að árétta að tekin eru þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma og geta tilboðsverð haft áhrif á verðbreytingar. 

Kannað var verð í eftirtöldum verslunum:  Bóksölu stúdenta, Eymundsson, A4, Forlaginu Fiskislóð, Griffli og Bókabúðinni IÐNÚ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert