Fóru inn á lokaðan veg

mbl.is/Hjörtur

Erlendir ferðamenn tróðu sér framhjá lokun við vestari leiðina að Dettifossi. Lögreglan á Húsavík segir lokunina í gildi vegna þess að langan tíma geti tekið að rýma svæðið sem lokað er.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni lögðu ferðamennirnir mikið á sig til að komast framhjá augljósum lokunum á veginum. Lögregla fór á eftir þeim og sektaði þá fyrir athæfið.

Lögreglan vill koma þeim skilaboðum á framfæri að nauðsynlegt sé að virða lokanir sem þessar, því þær séu ekki að ástæðulausu, heldur yfirleitt til að tryggja öryggi almennings.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert