Tveir voru fluttir með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans eftir að fisvél brotlenti á Þingvallavegi í Mosfellsbæ fyrr í kvöld. Fólkið er ekki alvarlega slasað en vissara þótti að láta lækni skoða það.
Fisvélin rakst á ljósastaur rétt áður en hún lenti á veginum. Atvikið varð um kl. 18:30 í kvöld og voru lögregla og sjúkralið kölluð á vettvang auk fulltrúa frá rannsóknarnefnd flugslysa.
Ekki liggur fyrir hvers vegna vélin lenti á Þingvallavegi, en veginum var lokað um óákveðinn tíma á meðan rannsókn stendur yfir.
Fisvél hlekktist á við lendingu