Lagt hald á kannabisefni og þýfi

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á um tvö kíló af kannabisefnum í Hafnarfirði en lögreglumenn framkvæmdu húsleit á tveimur stöðum í bænum í gær. Málin eru óskyld en einn maður var handtekinn.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu, að á öðrum staðnum hafi verið lagt hald á um 1,5 kg af kannabisefnum, auk ýmissa muna sem grunur leikur á að séu þýfi. M.a. var um að ræða talsvert af verkfærum og nokkrar fartölvur.

Á hinum staðnum, í óskyldu máli, tók lögregla einnig í sína vörslu kannabisefni, um hálft kíló. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar, en í fórum mannsins fannst enn fremur amfetamín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert