Miklu magni verkfæra stolið

Lögreglan á Suðurnesjum.
Lögreglan á Suðurnesjum. mbl.is/Sigurður Bogi

Miklu magni af verkfærum var stolið í vikunni, þegar brotist var inn í húsnæði í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Má þar nefna tvær skrúfvélar, stingsög, topplyklasett, ýmis handverkfæri og fleira.

Lögreglan á Suðurnesjum beinir þeim tilmælum til þeirra sem kunna að búa yfir upplýsingum um málið að hafa samband í síma 4201800.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert