Herjólfur kemst ekki frá bryggju

Herjólfur er nú í Þorlákshöfn en getur ekki farið frá bryggju þar vegna veðurs.

Næsta tilkynning verður send út kl. 17 og því ljóst að seinni ferð dagsins frá Eyjum verður ekki farin.

Farþegar eru vinsamlegast beðnir að fylgjast með fréttum á www.herjolfur.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert