Mikið um vatnsleka á höfuðborgarsvæðinu

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur staðið í ströngu í nótt og í morgun vegna útkalla vegna vatnsleka í húsnæði. Ríflega 20 útköll bárust vegna leka. Sums staðar náði vatn allt að 40 sentímetra frá gólfi. 

Fráveitukerfi borgarinnar virðist ekki ráða við að koma burt öðru eins vatnsmagni með þeim afleiðingum að það flæðir inn í hús.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert