Vilja taka heimilisofbeldi fastari tökum

Heimilisofbeldi.
Heimilisofbeldi. Rax / Ragnar Axelsson

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, og Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafa ákveðið að leggja fram frumvarp þegar Alþingi kemur saman til að taka heimilisofbeldi fastari tökum. Á síðasta ári voru 355 heimilisofbeldismál tilkynnt til lögreglu höfuðborgarsvæðisins, um eitt á dag.

Þingmennirnir segja að skortur sé á úrræðum vegna heimilisofbeldis og því muni þeir leggja fram frumvarp sem gerir ráð fyrir breytingu á almennum hegningarlögum. Gert er ráð fyrir nýju ákvæði um heimilisofbeldi sem felur í sér það nýmæli að lögregla fær heimild til að kæra brot gegn nálgunarbanni, en nú er það einungis þolandi sem kært getur slík brot.

„Samkvæmt úttekt embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum er ljóst að fá heimilisofbeldismál hljóta meðferð innan réttarkerfisins. Þá er rannsókn slíkra mál ábótavant. Til dæmis hafa úrræði laga um nálgunarbann og brottvísun af heimili ekki verið verið nýtt sem skyldi og einnig er skortur á stuðningi fyrir þolendur og eftir atvikum gerendur heimilisofbeldis.

Telja verður að heimilisofbeldi sé ekki litið nægilega alvarlegum augum í samfélaginu og þörf er viðhorfsbreytingar. Ríkt tilefni er til að skerpa á afstöðu löggjafans til heimilisofbeldis í almennum hegningarlögum og er tilgangur frumvarpsins að koma til móts við þau viðhorf,“ segir í tilkynningu frá þingmönnunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert