Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gefur nú kost á samráði um opnun markaða ogstefnumótun um fjarstýrð mannlaus loftför eða drón til nota í borgaralegum tilgangi. Samráðið stendur til 24. október næstkomandi.
Á vef innanríkisráðuneytisins segir að drón séu þegar mikið notuð í Evrópu í borgaralegum tilgangi svo sem við öryggisskoðanir innviða, ýmis verkefni sem komi upp vegna hamfara svo og í landbúnaði. „Víðtæk notkun tækjanna vekur spurningar viðvíkjandi öryggi í loftrými og fólks á jörðu niðri sem og spurningar um friðhelgi einkalífsins. Verkefnið verður því að ná jafnvægi milli þess ávinnings sem hafa má af tækjunum og þeim hömlum sem setja þarf á notkun þeirra.“
Frekari upplýsingar um verkefnið má finna á þessari vefslóð hjá ESB
Frétt mbl.is: Drónin koma heim