Ruglast á bensíngjöf og bremsu

Reykjanesbær
Reykjanesbær Sigurður Bogi Sævarsson

Skemmdir urðu á þremur bifreiðum í Keflavík í gær eftir að ökumaður einnar þeirra steig á bensíngjöf í stað bremsu. Í morgun varð svo annað óhapp með sama hætti þegar ökumaður var að leggja bifreið sinni í stæði og steig á bensíngjöfina í stað bremsunnar með þeim afleiðingum að hann ók á aðra bifreið.

Í fyrra tilvikinu ætlaði ökumaðurinn að stöðva bifreiðina við biðskyldumerki en steig þá á bensíngjöfina með þeim afleiðingum að bifreið hans snerist í hálfhring, fór yfir vegg og hafnaði á kyrrstæðri bifreið sem þar hafði verið lagt á bílastæði. Talsvert tjón varð á bifreiðunum og þurfti kranabíl til að fjarlægja tvær þeirra af vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert