Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, veitti í dag í tilefni af Degi íslenskrar náttúru, RÚV – hljóðvarpi og sjónvarpi, fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Við sama tækifæri veitti hann Tómasi J. Knútssyni, Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá umhverfis- og auðlindarráðuneytinu.
Í rökstuðningi dómnefndar fjölmiðlaverðlauna segir:
Umræða og umfjöllun um almannarétt og gjaldtöku fyrir aðgang að náttúruperlum hefur verið eins og rauður þráður í upplýsingamiðlun fjölmiðilsins (RÚV) á síðastliðnum tólf mánuðum, mikil að vöxtum, alhliða, upplýsandi og gagnrýnin. Öll mikilvægustu sjónarmið málanna hafa komið fram en ekki verður gert upp á milli einstakra þátta, RÚV er tilnefnt til verðlaunanna í einu lagi. Er það niðurstaða dómnefndar að sú umfjöllun samantekin verðskuldi fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins árið 2014 enda hafi mikilvægum hagsmunum og réttindum almennings hvað snertir náttúruna og umhverfið verið gerð ítarleg skil frá öllum hliðum málanna.
Í rökstuðningi ráðherra vegna Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti segir:
Tómas stofnaði Bláa herinn, sem eru frjáls félagasamtök hafa starfað síðan árið 1995 að umhverfisvernd í hafinu. Þeir sem til þekkja vita að Tómas og aðrir í þessum þarfa og friðsama her hafa unnið brautryðjendastarf við hreinsun í höfnun landsins með óeigingjörnu sjálfboðastarfi. Má þar nefna að yfir 1200 tonn af rusli hafa verið hreinsuð úr náttúrunni og komið til endurvinnslu í þessu starfi. Slíkar tölur segja þó aðeins litla sögu um mikilvægi starfsins sem Tómas og Blái herinn hafa unnið. Það sem skiptir kannski mestu máli í þessu samhengi er að við Íslendingar vöknum til meðvitundar um að umgengni okkar um haf og strendur skiptir ekki síður máli en umgengni okkar á fastalandinu.
Aðrir sem tilnefndir voru til fjölmiðlaverðlaunanna voru: