Ánægja með sumarfríið, vinnuna og nágranna

Íslendingar eru enn almennt ánægðir með sumarfríið sitt..
Íslendingar eru enn almennt ánægðir með sumarfríið sitt.. mbl.is/Styrmir Kári

Íslendingar virðast enn sem fyrr almennt ánægðir með sumarfríið sitt, vinnuna sína og nágranna. Þannig sögðust um 90% vera ánægð með sumarfríið sitt, vinnuna sína og nágranna. Þó fækkar þeim á milli ára sem sögðust vera mjög ánægðir með vinnuna sína og sumarfríið.

Þetta eru niðurstöður nýlegrar könnunar MMR á ánægju Íslendinga með lífið og tilveruna.

Könnunin var framkvæmd dagana 25. til 28. ágúst 2014 og var heildarfjöldi svarenda 945 einstaklingar, 18 ára og eldri.

Þegar aðeins var litið á þá sem sögðust mjög ánægðir með sumarfríið sitt mátti sjá að heldur færri voru ánægðir með sumarfríið sitt í ár (38,5%) en árið 2012 (57,5%). Hugsast getur að veðrið kunni að hafa þessi áhrif á upplifun Íslendina af sumarfríinu sínu. Eins og kom fram í könnun MMR sögðust 96,4% vera ánægðir með veðrið árið 2012, borið saman við 45,4% í ár. Einhver gæti gengið svo langt að álykta að veðrið kunni sömuleiðis að hafa áhrif á ánægju Íslendinga með vinnuna sína. Sólarsumarið 2012 sögðust 46,8% vera mjög ánægð með vinnuna sína, borið saman við 36,7% í ár.

Nánar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert