Gæsir ollu fjögurra bíla árekstri

Gæs. Mynd úr safni.
Gæs. Mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Gæs nokkur sat í mestu makindum á Bústaðarvegi við Veðurstofuna í dag, og gaf lítið fyrir umferð akandi vegfarenda. Kona nokkur þurfi hins vegar að komast leiðar sinnar á Bústaðarvegi, en gæsin gaf sig ekki, svo konan stöðvaði bílinn á veginum og flautaði á gæsina.

Við það bættust tvær gæsir í hópinn, og sátu sem fastast. Ekki fór betur en að úr varð fjögurra bíla árekstur, þar sem hverjum bílnum var ekið aftan á annan. Enginn slasaðist í árekstrinum, en nokkurt tjón varð á bílunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert