Lögreglan leitar manns vegna rannsóknar

Mynd sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt af umræddum manni.
Mynd sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt af umræddum manni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af piltinum sem sést á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Lögreglan biður hann vinsamlegast um að hafa samband við lögreglustöðina á Vínlandsleið 2-4 í Grafarholti í síma 444-1000.

Ef einhverjir þekkja til piltsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, eða senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið sigurdur.petursson@lrh.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert