Ölvaður og ógnandi flugfarþegi

AFP

Óskað var aðstoðar lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni við að fjarlægja drukkinn og ógnandi farþega sem var að koma með flugi frá Halifax. Um var að ræða karlmann á fimmtugsaldri sem hóf að haga sér dólgslega strax í upphafi flugs, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Fram kemur, að hann hafi verið ógnandi, með ólæti og hafi meðal annars barið í sjónvarpsskjá sem ætlaður sé farþegum. Þá rauf hann innsigli á bakka fyrir björgunarvesti og reif vestið fram. Áhöfn vélarinnar reyndi að tala hann til og róa hann, en án árangurs.

Lögreglan á Suðurnesjum handtók manninn við komuna til landsins vegna brots á lögum um loftferðir og að hafa ógnað öryggi loftferða. Tekin var af honum skýrsla og hann síðan vistaður í fangaklefa meðan af honum bráði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert