65 skjálftar frá miðnætti

65 skjálftar hafa mælst í Bárðarbungu frá miðnætti.
65 skjálftar hafa mælst í Bárðarbungu frá miðnætti. mbl.is/Árni Sæberg

Frá miðnætti hafa um 65 jarðskjálftar mælst í Bárðarbunguöskjunni og svipaður fjöldi við norðanverðan bergganginn. Stærstu skjálftarnir voru við norðanverða Bárðarbunguöskjuna kl. 1.10 í nótt og kl. 17.11. Fyrri skjálftinn mældist 5,1 og sá seinni 5 stig. 

Tveir skjálftar, 4 og 4,4 að stærð, voru við sunnanverða öskjuna kl. 17.04 og 17.05 og sjö aðrir skjálftar yfir 3 að stærð mældust við öskjuna. Um 15 skjálftar voru við Herðubreið/Herðubreiðartögl, allir minni en 2 stig. Einnig mældust skjálftar við Tungnafellsjökul.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert