Drukku áfengi og keyrðu af stað

Tveir eru grunaðir um ölvun við akstur eftir nóttina.
Tveir eru grunaðir um ölvun við akstur eftir nóttina.

Fjórar bifreiðar voru stöðvaðar af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Tveir ökumenn reyndust hafa verið sviptir ökuréttindum og ók annar ökumaðurinn þar að auki á ótryggri bifreið. Númerin voru tekin af bifreiðinni. 

Hinir tveir ökumennirnir eru grunaðir um ölvun við akstur og annar þeirra þar að auki um akstur án réttinda, en hann hafði aldrei öðlast ökuréttindi. 

Tilkynnt var um eld í strætóskýli við Sæbraut rétt fyrir klukkan sex í gærkvöldi. Slökkvilið fór á vettvang og slökkti eldinn. Skýlið sagt ónýtt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert