Elijah O. Okeshola sveik Arion

Arion banki.
Arion banki. mbl.is/Kristinn

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Nordic Visitor af 12,7 milljón króna kröfu Arion banka. Krafan er til komin vegna fjársvika manns sem kallaði sig Elijah O. Okeshola. Dómurinn taldi að vinnubrögð starfsmanna bankans hefðu verið með þeim hætti að ábyrgð á svikunum væri ekki hægt að færa yfir á Nordic Visitor.

Í málinu var um það deilt hver eigi að bera fjártjón það sem varð þegar útlendur aðili, Elijah Okesola, fékk annars vegar starfsmenn Arion banka til að leggja tékka að andvirði 84.600 EUR inn á reikning Nordic Visitor og hins vegar starfsmenn Nordic Visitor til að millifæra stærstan hluta þeirrar fjárhæðar, eða 77.548 EUR, inn á reikning Elijah Okesola hjá Dubai Islamic Bank, þaðan sem fjármunirnir hurfu. Þetta gerðist í ágúst 2011.

Okesola pantaði ferð hjá Nordic Visitor og sendi fyrir henni ávísun, ásamt bréfi, til Arion banka hf. þar sem hann bað bankann um að greiða andvirði tékkans inn á reikning Nordic Visitor. Bankinn varð við því en strax daginn eftir það lét starfsmaður Nordic Visitor bankann vita að Okesola hefði greitt of háa fjárhæð.

Meðhöndlun bankans á tékkanum var ekki í samræmi við það sem almennt tíðkaðist, til að mynda með það að leggja andvirði tékkans inn á reikning hjá Nordic Visitor án þess að beiðni um það hefði borist frá félaginu. „Ber því að hafna þeirri málsástæðu stefnanda að stefndi hafi þá þegar stofnað til greiðsluskyldu gagnvart stefnanda með greiðslu stefnanda inn á reikning stefnda,“ segir í niðurstöðu dómsins.

Starfsmaður Nordic Visitor upplýsti starfsmann Arion banka um að til stæði að endurgreiða Okesola hluta upphæðarinnar og spurði af því tilefni sama starfsmann Arion banka hvort hann gæti treyst því að upphæðin færi ekki aftur út af reikningnum. Starfsmaður Arion banka svaraði um hæl að upphæðin yrði ekki bakfærð enda búið að framselja tékkann.

„Í ljósi þess aðstöðumunar sem var með aðilum var brýn ástæða til þess að starfsmaður stefnanda varaði stefnda við því að bankinn ætti eftir að innleysa tékkann ytra og minnti hann á ábyrgð hans á tékkanum, hafi sú ábyrgð verið til staðar. Það var þó ekki gert. Eins og hér stóð á mátti starfsmaður stefnda því skilja orð starfsmanns stefnanda samkvæmt orðanna hljóðan, þ.e. þannig að honum væri óhætt væri að endurgreiða fjárhæðina.“

Var því Nordic Visitor sýknað af kröfunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert