Adolf gefur ekki kost á sér

Adolf Guðmundsson.
Adolf Guðmundsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Adolf Guðmundsson, lögmaður og framkvæmdastjóri Gullbergs ehf. á Seyðisfirði, hefur tilkynnt stjórn LÍÚ að hann gefi ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku í sambandinu. Adolf hefur verið formaður stjórnar LÍÚ frá árinu 2008, eða í sex ár.

Aðalfundur LÍÚ verður haldinn 30. og 31. október 2014 á Hilton Reykjavík Nordica. Á fundinum er hluti stjórnarmanna kosinn til þriggja ára. Formaður er kosinn sérstaklega til eins árs í senn, segir í frétt á vef LÍÚ.

Síld­ar­vinnsl­an hf. hef­ur keypt öll hluta­bréf í Gull­bergi ehf. á Seyðis­firði sem ger­ir út tog­ar­ann Gull­ver NS 12.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert