Töluvert um hávaðaútöll

Töluvert annríki var hjá lögreglunni á Suðurnesjum í nótt.
Töluvert annríki var hjá lögreglunni á Suðurnesjum í nótt. Sigurður Bogi Sævarsson

Töluvert annríki var hjá lögreglunni á Suðurnesjum í nótt og minnti helst á föstudags- eða laugardagskvöld. Flest útköllin tengdust hávaða í heimahúsum sem raskaði nætursvefni þeirra sem þurfa að vakna til skóla og vinnu.

Að sögn varðstjóra í lögreglunni gista þrír fangageymslur lögreglunnar en talsvert ónæði var vegna skemmtanahalds í heimahúsum í umdæmi lögreglunnar allt til klukkan fjögur í nótt.

Eins var haft samband við lögreglu vegna hunda sem ekki var sinnt af eigendum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert