Alvarlegur læknaskortur blasir við

Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Um helmingur sérfræðimenntaðra lækna á Sjúkrahúsinu á Akureyri er eldri en 55 ára. Á næstu fimm árum munu níu sérfræðilæknar á sjúkrahúsinu láta af störfum sökum aldurs. Þetta kemur fram í Vikudegi sem kom út í gær.

Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri, segir þetta verulegt áhyggjuefni og alvarlegur læknaskortur blasi við verði ekki brugðist við vandanum. Ráða þurfi minnst 15 sérfræðinga næstu 4-5 árin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert