Dagbækur forsætisráðherra öllum til sýnis

Guðfinna Guðmundsdóttir og Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður skrifa undir samning um …
Guðfinna Guðmundsdóttir og Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður skrifa undir samning um afhendingu safnsins.

Guðfinna Guðmundsdóttir hefur afhent Borgarskjalasafn Reykjavíkur til varðveislu einkaskjalasafn dr. juris Björns Þórðarsonar, sem var forsætisráðherra utanþingsstjórnar á miklum umbrotatíma, 1942 til 1944. Guðfinna er tengdadóttir Björns.

Safnið er mjög viðamikið, alls 32 öskjur, og nær yfir ævihlaup Björns, bæði í einkalífi, starfi og sem stjórnmálamaður. Safnið inniheldur mikið af heimildum um sjálfstæðisbaráttu og lýðveldisstofnun Íslendinga sem ekki hafa áður verið aðgengilegar fræðimönnum og almenningi. Sumt af þessu eru einstakar heimildir, til dæmis dagbækur Björns og minnisbækur frá þeim tíma þegar hann var forsætisráðherra. Þær gefa ótrúlega skemmtilega innsýn bak við tjöldin á þessum umbrotatíma, segir í fréttatilkynningu frá Borgarskjalasafni Reykjavíkur.

Borgarskjalasafn Reykjavíkur hefur ljósmyndað umræddar dagbækur og minnisbækur og mun formlega gera þær aðgengilegar öllum á afmælisdegi safnsins þriðjudaginn 7. október en þá heldur safnið upp á 60 ára afmæli sitt.

Borgarskjalasafn Reykjavíkur varðveitir nú heildstæð einkaskjalasöfn þriggja forsætisráðherra, auk Björns Þórðarsonar söfn Bjarna Benediktssonar og Ólafs Thors. Öll söfnin hafa verið skráð og er hægt sækja um aðgang að þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert