Brothætt staða á vinnumarkaði

Samtök atvinnulífsins kalla eftir sáttaumleitan til að lægja öldur innan …
Samtök atvinnulífsins kalla eftir sáttaumleitan til að lægja öldur innan verkalýðshreyfingarinnar. mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Viðkvæm staða er komin upp á vinnumarkaði sem kallar á að aðilar vinnumarkaðarins og fulltrúar ríkisstjórnarinnar leiti leiða til að lægja öldurnar í aðdraganda kjarasamninga. Viðræður um sérkjaraliði eru liður í þeirri sáttaumleitan.

Þetta segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í Morgunblaðinu í dag, aðspurður hvernig samtökin hyggjast bregðast við þeirri ólgu sem upp er komin meðal aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands.

„Ég held að það sé fullt tilefni til þess að menn skoði hvernig við tökumst á við þessa stöðu. Því þessi ólga getur á endanum leitt til þess að við glutrum niður þeim mikla ávinningi sem náðst hefur. Markmið kjarasamningsins í fyrra náðust.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert