Stór skjálfti í Bárðarbungu

Eldgosið í Holuhrauni.
Eldgosið í Holuhrauni. mbl.is/RAX

Enn er mikil skjálftavirkni við Bárðarbungu. Skjálfti af stærð M 5,1 varð kl. 08:54 í morgun við norðanverða brún Bárðarbunguöskjunnar.

Nokkrir skjálftar milli 4 og 5 að stærð hafa mælst síðasta sólarhringinn. Vel sást til gossins á vefmyndavélum í nótt og fram á morguninn og virtist svipaður gangur í gosinu og verið hefur. Slæmt skyggni er nú á svæðinu og ekkert að sjá á vefmyndavélum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert