Röð fyrir utan dekkjaverkstæði

Nóg að gera á dekkjaverkstæði N1 í Fellsmúla í morgun.
Nóg að gera á dekkjaverkstæði N1 í Fellsmúla í morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Röð bíla hafði myndast kl. 8 í morgun við dekkjaverkstæði N1 í Fellsmúla í Reykjavík. Mikil hálka er víða á höfuðborgarsvæðinu og margir vilja komast á vetrardekkin í dag.

Töluvert snjóaði á höfuðborgarsvæðinu í nótt og í morgun og hafa margir átt í erfiðleikum með að komast til vinnu og skóla, m.a. í Kópavogi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert