Edda Heiðrún festist í lyftu

Tinna Gunnlaugsdóttir, þjóðleikhússtjóri.
Tinna Gunnlaugsdóttir, þjóðleikhússtjóri. mbl.is/Rósa Braga

Á frumsýningu á Karitas festist Edda Heiðrún Backman leikkona í lyftu sem ætlað er að flytja hjólastóla frá inngangi og upp á gestasvæði Þjóðleikhússins. „Ég harma þetta atvik og tel afleitt að sá búnaður sem hreyfihamlaðir einstaklingar verða að reiða sig á í Þjóðleikhúsinu geti ekki staðið undir væntingum,“ segir í bréfi Tinnu Gunnlaugsdóttur þjóðleikhússtjóra. Edda Heiðrún sendi þjóðleik­hús­stjóra og fram­kvæmda­stjóra Fast­eigna rík­is­sjóðs opið bréf þar sem hún gagnrýndi aðgengi fatlaðra að þjóðleikhúsinu.

Tinna skrifar í svarbréfi sínu að þegar hún hafi tekið við stöðu þjóðleikhússtjóra fyrir rétt tæpum tíu árum hafi legið fyrir að leikhúsið þarfnaðist viðamikilla og gagngerra viðgerða og endurbóta, utan húss sem innan. „En auk þess að bjarga húsinu frá frekara niðurbroti og rakaskemmdum var algert forgangsmál að tryggja aðgengi fatlaðra,“ skrifar Tinna. 

Tinna segir að stjórnvöld hafi brugðist við ákallinu og fjármagn var sett í umfangsmiklar framkvæmdir utanhúss, auk þess sem viðhaldsmálum leikhússins til frambúðar og úrbótum innanhúss var komið til fagaðila, eða Fasteigna ríkissjóðs, sem er nú ábyrgðaraðili húseignarinnar.

„Bestu lausna var leitað til að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra að leiksýningum í Þjóðleikhúsinu. Þess ber þó að geta að í hönnun hússins er ekki tekið tillit til aðgengis fatlaðra, ekki frekar en öðrum húsum frá sama tíma, og lausnirnar því alltaf að einhverju marki málamiðlun út frá aðstæðum, eins og forsvarsmönnum leikhússins var kynnt af hálfu þeirra sérfræðinga sem sáu um að velja búnaðinn,“ skrifar Tinna og heldur svo áfram:

„Það er vissulega álitamál hvernig til hefur tekist en þeim búnaði sem sérfræðingar töldu bestan og tryggastan var komið upp á árunum 2007 til 2009, en það eru fjórar mismunandi lyftur í aðalbyggingunni, rampur við starfsmannainngang og lyfta við Kassann á Lindargötu 7.

Þjóðleikhúsið hefur á umliðnum árum tekið á móti fjölda gesta í hjólastólum og búnaðurinn verið tekinn reglulega út, síðast núna í byrjun september, en þá var hann vottaður til árs eða til haustsins 2015. Helgina áður en Edda Heiðrún festist í lyftunni fóru fjórir gestir í hjólastólum upp og niður með þessari sömu lyftu án vandræða. En þótt búnaðurinn hafi að mestu virkað vel er satt og víst að á því eru alvarlegar undantekningar, eins og bréf Eddu Heiðrúnar ber með sér. Tækni og búnaður getur alltaf bilað, en það er sérstaklega sárt þegar fatlaðir leikhúsgestir þurfa að verða fyrir töfum og jafnvel missa af leiksýningu vegna tæknibilana. Leita verður allra leiða til að tryggja örugga aðkomu og aðgengi hreyfihamlaðra að Þjóðleikhúsinu, það er ekki spurning, og það er svo sannarlega vilji yfirstjórnar Þjóðleikhússins. 

Þjóðleikhúsið hefur fyrr á þessu ári komið áhyggjum sínum á framfæri við ábyrgðaraðila húseignarinnar, fasteignir ríkissjóðs, eða núna í febrúar, þegar maður í hjólastól festist í lyftunni utandyra, en Edda Heiðrún vísar einmitt til þess atviks í bréfi sínu. Þá var úrbóta krafist og því fylgt eftir af hálfu undirritaðrar. Til að fylgja málinu frekar eftir lét Þjóðleikhúsið gera óháða úttekt á aðgengi að húsnæði Þjóðleikhússins nú í vor, auk þess sem málið var tekið upp á fundi með fulltrúum mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Það er ljóst að ekki verður unað við þetta ótrygga ástand lengur og á fundi þjóðleikhússtjóra og framkvæmdastjóra leikhússins með verkefnisstjóra fasteigna ríkissjóðs í gær var staðfest og fullyrt að úrbætur yrðu settar í afgerandi forgang hjá embættinu.“

Edda Heiðrún Backman.
Edda Heiðrún Backman. Morgunblaðið/Kristinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert