Gríðarlegur heiður fyrir borgina

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mbl.is/Ómar Óskarsson

„Þetta er gríðarlegur heiður og ég er ótrúlega stoltur,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í samtali við mbl.is en Reykjavík hlaut í dag náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandarás 2014 sem afhent voru við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi.

Í rökstuðningi dómnefndar segir m.a. að Reykja­vík­ur­borg fái verðlaun þessi „fyr­ir víðtækt og mark­visst starf sveit­ar­fé­lags­ins að um­hverf­is­mál­um. Það sama má segja um ýmsa aðra af þeim sem til­nefnd­ir voru, en Reykja­vík­ur­borg hef­ur einnig gert ým­is­legt sem hún er ein um og sem get­ur orðið öðrum inn­blást­ur.“

Dagur B. segir viðurkenningu þessa til marks um að Reykjavíkurborg sé nú á réttri leið enda Norðurlöndin mjög framarlega þegar kemur að umhverfismálum í heiminum. 

„Ástæðan fyrir því að ýmislegt hefur þokast í rétta átt á undanförnum árum er m.a. vegna þess að við erum reiðubúin til að viðurkenna vandamálin og gera betur. Þetta segir okkur að það sem við erum að gera stenst samanburð við það besta og er ég ótrúlega stoltur af því, samstarfsfólki okkar og hinni fjölmennu grasrót sem brennur fyrir umhverfismál og skipulag á Íslandi,“ segir Dagur B.

Frétt mbl.is: Reykjavík verðlaunuð af Norðurlandaráði

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert