Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu veitt

Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála, Brynhildur Guðmundsdóttir og Katelijne Beerten …
Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála, Brynhildur Guðmundsdóttir og Katelijne Beerten frá Reykjavík Natura. Með þeim er Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri og Björn Jóhannsson, umhverfisstjóri Ferðamálastofu.

Icelandair Hótel Reykjavík Natura er handhafi umhverfisverðlauna Ferðamálastofu fyrir árið 2014. Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála, afhenti verðlaunin í lok fjölsótts Ferðamálþings í Hörpu í gær.

Icelandair hótel Reykjavík Natura fékk umhverfisstjórnunarkerfi sitt vottað samkvæmt staðlinum ISO 14001 árið 2012, fyrst hótela á Íslandi. Mikill árangur náðist í umhverfisstarfinu strax á árunum 2011 til 2012, m.a. í flokkun úrgangs og orkusparnaði.

Starf hótelsins í þágu umhverfis og samfélags er mjög vel skipulagt, einkar vel hefur verið staðið að kynningu og mörg verkefnin eru frumleg og framsýn. Sem dæmi um það má nefna að gestir hótelsins fá strætókort án endurgjalds til að auðvelda þeim vistvænar ferðir innanbæjar. Hótelið uppfyllir öll viðmið umhverfisverðlauna Ferðamálastofu og þar er unnið markvisst og metnaðarfullt umhverfisstarf.

Eitt af hlutverkum Ferðamálastofu er að hvetja einstaklinga og fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar til ábyrgðar í umhverfismálum. Liður í þessari viðleitni er að Ferðamálastofa veitir umhverfisverðlaun til ferðaþjónustufyrirtækja eða einstaklinga í ferðaþjónustu sem þótt hafa skara framúr á sviði umhverfismála.

Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og er þetta því 20. árið í röð sem verðlaunin eru veitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert