Krakkamót í körfubolta

Krakkar í körfubolta
Krakkar í körfubolta Af vef mótsins

Körfuknattleiksmót fyrir yngstu leikmennina verður haldið um helgina í Grafarvoginum. Mótið í ár er það sextánda í röðinni sem Fjölnir og Sambíóin standa fyrir. Að venju er ekki keppt um sætin né stigin talin.

Þátttakendur á mótinu eru stelpur og strákar fædd 2003 og síðar. Mörg hver eru að taka sín fyrstu skref í körfubolta.  Spilað er í tveimur íþróttahúsum í Grafarvogi, annars vegar í Rimaskóla fyrir yngstu iðkendurna og hins vegar í Íþróttahúsi Grafarvogs Dalhúsum, samkvæmt fréttatilkynningu. 

Allar nánari upplýsingar um mótið er að finna hér 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert