Gasmengunin frá eldgosinu berst til vesturs í dag og gæti orðið vart við hana á eftirfarandi svæðum: í uppsveitum Suðurlands, við Faxaflóa, Breiðafjörð og jafnvel á sunnanverðum Húnaflóa um tíma fyrrripartinn.
Á morgun berst mengunin til suðvesturs og gæti orðið vart við hana á svæði sem afmarkast af Þingvallavatni í vestri og Skeiðarárjökli í austri.