Skipar tvo nýja lögreglustjóra

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætis- og dómsmálaráðherra, hefur skipað tvo nýja lögreglustjóra, Páleyju Borgþórsdóttir í embætti lögreglustjóra í Vestmannaeyjum og Karl Inga Vilbergsson í embætti lögreglustjóra á Vestfjörðum. Þetta kemur fram á vef dómsmálaráðuneytisins. 

Embættin voru auglýst laust til umsóknar með umsóknarfresti til 18. ágúst og bárust ráðuneytinu fimm umsóknir um hvort embætti frá átta umsækjendum, þremur konum og fimm körlum.

Dómsmálaráðherra fól valnefnd að fjalla um og leggja mat á umsóknir um embætti lögreglustjóra. Í valefndina voru skipuð þau Daði Kristjánsson saksóknari, Guðný Elísabet Ingadóttir mannauðsstjóri og dr. Þórður S. Óskarsson, framkvæmdastjóri.

Allir umsækjendur uppfylltu almenn hæfisskilyrði og voru þeir allir boðaðir í viðtal. Niðurstaða valnefndar var sú að Páley Borgþórsdóttir uppfylli best kröfur til að gegna embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum og að Karl Ingi Vilbergsson sé hæfastur til að gegna embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum

Páley Borgþórsdóttir útskrifaðist með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2002. Hún öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2004. Páley hefur starfað sem löglærður fulltrúi  hjá sýslumanninum í Vestmannaeyjum og staðgengill sýslumanns. Frá 2007 hefur Páley starfað sem héraðsdómslögmaður.

Karl Ingi Vilbergsson útskrifaðist með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2001. Hann hefur starfað sem löglærður fulltrúi hjá sýslumanninum í Kópavogi og við efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjórans. Frá 2007 hefur Karl Ingi starfað sem aðstoðarsaksóknari hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu til dagsins í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka