Keppt í málmsuðu í 20. sinn

Íslandsmótið í málmsuðu verður haldið í Iðnskólanum í Hafnarfirði laugardaginn 22. nóvember n.k. og hefst keppnin kl 8:00 og stendur til kl 12:00. Keppt er í sex suðuaðferðum til Íslandsmeistara en þær eru: Pinnasuða, Mag suða svart, Tig suða svart, Logsuða, Tig suða ryðfrítt og Mag suða ryðfrítt.

Þetta er í tuttugasta sinn sem keppnin er haldin og eru tólf keppendur skráðir til leiks.

Gríðarlegur áhugi er fyrir keppninni á meðal málmiðnaðarmanna og hefur skapast samkeppni milli fyrirtækja sem kappkosta að ná Íslandsmeistaratitlum til sinna fyrirtækja, en auk þess að keppa til íslandsmeistara þá er keppt um verðlaun fyrir árangur í einstökum suðuaðferðum, segir í fréttatilkynningu. 

Eins og áður hefur komið fram þá er þetta í 20 sinn sem keppnin er haldin og hafa 8 Íslandsmeistarar verið krýndir þar af tveir þrjú ár í röð og tveir þrisvar: Bjarni Bjarnason 1994, Sveinbjörn Jónsson 1995-1997, Snorri Jónsson 1998, Páll Róbertsson 1999, 2003 og 2005, Jón Þór Sigurðsson 2000-2002, Freyr Jónsson 2004, Hlynur Guðjónsson 2006, 2011, 2012 og 2013, Sigurður Guðmundsson 2007-2008, Jóhann Helgason 2009-2010.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert