Í morgun barst tilkynning til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um bifreið með kerru utan vegar í Heiðmörk. Þarna voru á ferðinni tveir karlmenn á tvítugs- og þrítugsaldri.
Þeir eru grunaðir um innbrot í nýbyggingu í Hafnarfirði fyrr í morgun og voru m.a. með þýfi á kerrunni. Auk þess eru þeir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og voru á stolnum bíl. Þeir gista nú fangaklefa og verða yfirheyrðir síðar í dag.