Stuðningur við ríkisstjórnina eykst

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. mbl.is/Ómar

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina, stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, á tímabilinu 21. til 25. nóvember. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 36,4% en mældist 33,0% í síðustu mælingu sem lauk þann 4. nóvember og 34,3% í lok október.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,4%, borið saman við 23,6% í síðustu könnun.

Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 16,5%, borið saman við 16,1% í síðustu könnun.

Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 15,5%, borið saman við 18,6% í síðustu könnun.

Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,8%, borið saman við 12,3% í síðustu könnun.

Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 11,2%, borið saman við 10,7% í síðustu könnun og mældist fylgi Pírata mældist nú 10,6%, borið saman við 11,3% í síðustu könnun.

Fylgi annarra flokka mældist undir 2%. 

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 78,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,3%), myndu skila auðu (6,8%), myndu ekki kjósa (3,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu könnun þar á undan.

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 84,2% afstöðu til spurningarinnar.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1042 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 21 til 25. nóvember 2014

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert