Gáfu Barnaspítalanum sérsmíðað dúkkuhús

Starfsfólk á handverkstæðinu Ásgarði færði Barnaspítalanum tréleikföng. Sigurbjörn Guðmundsson og …
Starfsfólk á handverkstæðinu Ásgarði færði Barnaspítalanum tréleikföng. Sigurbjörn Guðmundsson og Ingþór S. Ísleifsson. Með þeim er Sigurbjörg A. Guttormsdóttir og ungur sjúklingur, Ríkarður Valur. Ljósmynd/Landspítalinn

Starfsfólk Ásgarðs í Mosfellsbæ, undir stjórn Hilmis Þórs, sérsmíðuðu dúkkuhús, kisuhurðastoppara, dúkkuvagn og fleira og færðu Barnaspítala Hringsins að gjöf. Þetta eru vönduð og sterk leikföng fyrir breiðan aldur barna.  Fulltrúar gefanda afhentu leikföngin í leikstofunni á Barnaspítala Hringsins 27. nóvember 2014.

Handverkstæðið Ásgarður var stofnað 1993 og hefur starfsleyfi frá velferðarráðuneyti sem verndaður vinnustaður. Þar starfa nú 30 þroskahamlaðir einstaklingar ásamt 7 leiðbeinendum, segir í frétt frá Landspítalanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert