Selja 6.000 miða í The Color Run

Nákvæm hlaupaleið verður tilkynnt á næstu vikum en unnið er …
Nákvæm hlaupaleið verður tilkynnt á næstu vikum en unnið er að því að finna hentuga leið í miðborg Reykjavíkur.

The Color Run verður haldið í fyrsta skipti á Íslandi laugardaginn 6. júní 2015 og miðasala er hafin á miði.is.  Hlaupið er 5 km langt þar sem litagleði og tónlist ræður ríkjum.

The Color Run er tileinkað réttindum barna og stefnt er að því að 5 milljónir króna renni til góðgerðarmála vegna viðburðarins.

Fjöldi hlaupara verður takmarkaður við 6.000 en sá fjöldi hefur nú þegar staðfest komu sína á samfélagssíðu hlaupsins sem fór í loftið nú í nóvember. The Color Run hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og yfir 200 hlaup hafa verið haldin í meira en 40 löndum. 

Nákvæm hlaupaleið verður tilkynnt á næstu vikum en unnið er að því að finna hentuga leið í miðborg Reykjavíkur.

.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert