Ótrúlega fallegt myndband af Íslandi

Skjáskot úr myndbandinu.

Vefsíðan Fstoppers birti ótrúlega fallegt myndband af Íslandi á Youtube um helgina.

Í myndbandinu má sjá náttúru Íslands í allri sinni dýrð, jökla, fjöll, ár, íshella, norðurljós og fallega fossa svo fátt eitt sé nefnt.

Myndbandið er einstakt að því leyti að það er allt tekið með dróna. Sjón er sögu ríkari. Til að myndbandið njóti sín sem best mælum við með því að þið smellið á tannhjólið í hægra horninu niðri og veljið HD 1080 myndgæði.

Skellið svo upp heyrnartólunum og bíðið eftir gæsahúðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert