Reyndi að hrækja á lögregluna

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í vímu í Hafnarfirðinum skömmu eftir miðnætti í nótt en honum hafði nokkru áður verið veitt tiltal í miðborginni vegna ástands hans og boðið að koma sér til síns heima.

Var ákveðið að láta manninn sofa úr sér í fangaklefa en hann reyndi síðan bæði að hrækja á lögregluna þegar hann var fluttur á lögreglustöð og einnig að skalla lögregluþjón. Hann gistir nú fangaklefa.

Um tíu leytið í gærkvöldi var ökumaður síðan stöðvaður vegna umferðarlagabrots. Hann reyndist einnig undir áhrifum fíkniefna. Handtekinn og færður á lögreglustöð. Laus að sýnatöku lokinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert