Runnu út af á Reykjanesbraut

Þessi mynd er tekin á Reykjanesbrautinni í gærdag en þá …
Þessi mynd er tekin á Reykjanesbrautinni í gærdag en þá lokaðist hún vegna veðurs og færðar. Ljósmynd Andreas Boysen

Hálka er á Reykjanesbraut og þar er mjög hvasst. Lögreglan á Suðurnesjum biður ökumenn um að fara varlega og aka í samræmi við aðstæður.

Í nótt runnu tveir bílar útaf Reykjanesbrautinni en ekki urðu slys á fólki, að sögn lögreglu.

Seinkun hefur verið á millilandaflugi í morgun en það tengist því að aflýsa þurfti öllu millilandaflugi um tíma í gær vegna óveðursins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert