Tafir á siglingum vegna veðurs

Undanfarnar vikur hafa stormar blásið á Norður-Atlantshafi og hver djúp lægðin á fætur annarri farið hjá eða yfir Ísland. Sjófarendur hafa ekki farið varhluta af þessu og hefur m.a. sigling skipa til og frá Íslandi sóst seint. 

 Þetta kemur fram á vef Landhelgisgæslunnar.

Þar segir, að skip sem sigli á milli Íslands og Norður-Evrópu, sem að öllu jöfnu taki þrjá til fimm daga, hafi verið að lengjast í fimm til átta daga þar sem að þau fari mun hægar yfir við þessar aðstæður.  

Skipin þurfi jafnvel að halda sjó, þ.e. að sigla á hægri ferð upp í ölduna. 

„Það er heldur ekki alltaf einfalt mál við þær aðstæður sem hafa skapast því stormarnir hafa blásið úr mörgum áttum þannig að sjómenn segja að mjög missjávað sé á þessum siglingaleiðum,“ segir Gæslan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert