Frábært færi í Bláfjöllum

Skíðasvæðið í Bláfjöllum var opnað í fyrsta skipti í vetur í dag, skíðafólki til mikillar gleði enda voru aðstæður frábærar og troðinn púðursnjór í brekkunum. Fáir hafa þó verið jafn spenntir og félagarnir Auðunn og Aron sem voru mættir fyrstir manna í brekkurnar enda búnir að bíða frá því að síðast var opið í fjöllunum snemma árs.

mbl.is kíkti í Bláfjöll við opnun í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert