Ísland langt frá þolmörkum

45 þúsund ferðamenn eru á Íslandi hvern dag yfir háannatíma. …
45 þúsund ferðamenn eru á Íslandi hvern dag yfir háannatíma. Þessir eru ekki í þeim hópi, heldur á ferð utan háannatímans. mbl.is/RAX

Ísland er langt frá því að nálgast þolmörk sín hvað fjölda erlendra ferðamanna varðar, samkvæmt þeim upplýsingum sem fram komu í erindi Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar Icelandair Group.

Erindið flutti Halldór á fjárfestafundi félagsins og leitaðist þar við að svara því hvort fjölgun erlendra ferðamanna til Íslands væri raunverulegt áhyggjuefni.

„Menn þurfa að horfa á þetta frá réttu sjónarhorni og þetta er tilraun til að gera það. Heildarfjöldinn yfir árið skiptir minna máli,“ segir Halldór í Morgunblaðinu í dag. Fjöldi ferðamanna hefur þrefaldast yfir háannatímann frá árinu 2003, þegar erlendir ferðamenn voru 15 þúsund talsins á dag, en árið 2014 er fjöldinn 45 þúsund á dag yfir háannatímann en 10 þúsund ferðamenn að meðaltali á dag utan háannatíma.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert